|
13.10.2007 23:51:28 / isabella
Come on gæs...þið fáu sem kíkið ennþá reglulega inn á þetta hjá mér.......hvað finnst ykkur að platan mín eigi að heita? Tjékkið á skoðannakönnuninni minni og kjósið  hehehe mörg N í þessu orði......da darradda da....skoðannakönnuninni. fjúff vá maður. MAZELTOV.
»
28.07.2007 20:24:35 / isabella
* Slyngur skipuleggjari
* Frumkvöðull
* Þyrstir í hlýju, athygli og viðurkenningu
* Ónæm/ur gagnvart óttanum
Vatnsberinn er ellefta merki dýrahringsins. Margir misnefna
vatnsberamekrið sem vatnsmerki en það er í raun loftmerki og þess
vegna reiðir þú þig fyrst og fremst á hugann. Komið er inn á þessa
staðreynd því þú lifir árið 2007 alveg í huganum og treystir honum
langt umfram líkamann. Þú ert án efa frábærum gáfum gædd/ur en árið
2007 skaltu huga að tilfinningum þínum sem kunna að vera kaldar og
útreiknanlega óútreiknanlegar.
Jafnrétti, hreinskilni, forvitni og vinarþel eru með bestu og
aðdáunarverðustu kostum þínum. Ekkert af þessu minnkar þótt hýja
bætist við. Hlýjan og væntumþykjan verður einungis til þess að
stjarna þín skín enn skærar árið 2007.
Þú ert frumkvöðull hvað alla menningu varðar og ókomnar lífsvenjur.
Þér er ráðlagt að leggja þig fram við að virkja eiginleika þína
hvað það varðar árið 2007. En full stjórn á huganum er þér á móti
skapi, þú styður skoðanafrelsi og frelsi hugans.
Þú getur verið ástvinum þínum allt í byrjun sumars 2007; jafningi,
félagi, uppfinningasamur og ákafur elskhugi, gott foreldri,
nemandi, kennari, systir eða bróðir. Þú getur stjórnað
stórfyrirtæki jafnt sem heimilinu en aðeins ef þú vilt og þjálfar
þig til þess. Þú gætir jafnvel skrifað bók um leið og þú sinnir
hefðbundnum störfum. Svo mikill er kraftur þinn árið framundan.
Allir þínir draumar geta ræst ef þú aðeins trúir því innra með þér.
Samhliða því verður þú að vilja skoða sjálfa/n þig. Þú þarft að
gefa litla barninu sem lifir innra með þér, meiri ást og aukið
svigrúm því þig hungrar og þyrstir í hlýju, athygli og
viðurkenningu. Fullorðni hluti þinn biður reyndar um hvorugt, en þú
mættir læra það árið 2007.
Vetur konungur sýnir stjörnu þína ástfangna og sterka. Þú opnar
hjarta þitt upp á gátt. Ástin litar allt líf þitt í nóvemberbyrjun
og sköpunargleðin verður meiri en nokkru sinni. Þú ert við það að
springa af spenningi og ætlunum. Þér finnst í fyrsta skipti sem
framtíð þín sé trygg, að minnst kosti í bili. Þegar þér líður svona
vel getur þú einfaldlega látið kraft þinn vinna fyrir þig í átt að
þínum dýpstu draumum. Ímyndaðu þér hvað þú ert fær um að skapa með
því að vera til að mynda flekklaus í orði. Þá getur þú umbreytt
hugarástandi óttans yfir í kærleika. Þú getur lifað í himnaríki ef
þú vilt því þú ert ónæmur gagnvart óttanum. Svo ert þú líka slyngur
skipuleggjari sem er góður kostur. Meðfædd dulúð þín er einnig
svakalega áberandi yfir vetrartímann árið 2007. Vil einfalda þetta:
Í spánni þinni kemur skýrt fram að ef og þegar þú finnur jafnvægið
sem leiðir af sér vellíðan þá ertu fær um að lífga drauma þína við.
Mikil áhersla er lögð á þetta í ársspánni þinni kæri vatnsberi.
Þú hefur mátt til að gera fólk hamingjusamt og gerir það árið
framundan með því að veita því frelsi til að læra og þroskast.
Þú mátt ekki hlaupa yfir eitt einasta stig í átt þinni að því að
þroskast. Það er einfaldlega ekki gert ráð fyrir því í
þróunarferlinu. Þá kæmu göt þar sem ótti og efi og skortur á
trausti leyndist. Allt myndi hrynja ef svo má að orði komast. Það
vilt þú áreiðanlega ekki. Þú finnur vissulega þína leið kæri
vatnsberi þegar árið framundan er skoðað. Getur ekki verið að þú
sért hingað komin/n til að sjá fegurðina í ljótleikanum, kærleikann
og hatrið, ljósið og myrkrið?
Tími þinn er námsgagn. Allt sem beinir athyglinni þinni á rétt
braut má kalla námsgagn. Hugaðu vel að þessu árið framundan.
Áhersla lögð á betrumbætur
- Samskipti innan fjölskyldunnar
- Hætta alfarið að reyna að breyta framferði annarra
- Sýna þolinmæði í meira mæli
- Huga að gildismati þínu á einkalíf þitt
- Takast á við ótta þinn við náin kynni
»
18.07.2007 22:03:00 / isabella
Come on......skrifið nú eitthvað í gestabókina mína  plís.
»
18.07.2007 22:00:35 / isabella
Jæja já.....mín rosalega ferð til Noregs sem tók u.þ.b. sólahring
 heheheh. Fór til Stavanger að skila krökkunum. Ekkert smá sárt
að fara með þau aftur út  en svona er þetta og maður verður
bara að bíta í það súra. En svakalega er maður orðinn sjóaður í að
fljúga....úff.....ég fer erlendis að meðaltali 5 sinnum á ári. Fór
í brúðkaupið hjá Svedda og Dillu um daginn....tók krakkana með, það
var yndislegt og ég óska þeim turtildúfum innilega til hamingju.
»
09.07.2007 21:41:10 / isabella
Vá hvað tíminn líður hratt.....uss.....samt eldist maður ekkert 
hehe....Ég er bara á milljón í músíkinni...komin með 3 ný
lög.....skratti góð þó ég segi sjálf.....enda væri ekki mikið vit í
þessu ef manni leiddist sína eigin tónlist  Er að spila á Hótel
Geysi á útihátíðinni næstu helgi...hlakka bara til. Þetta verður
alla laugardaga í júlí og ég kíkti við síðasta laugardag....líst
bara vel á þetta. Ég "skrapp" til Noregs um daginn að ná í ungana
mína...Elísubet Rós 11 ára og Daniel Roberto 9 ára...þau verða hjá
mér til 16. júlí og þá "skrepp ég með þau aftur til Noregs. Ágústa
vinkona mín ætlar með mér og við ætlum að vera í einhvern tíma,
viku ca, að flakka um Noreg og hitta vini og kunningja, það verður
geggjað. Nokkrir dagar í Stavanger, kannski Bergen og svo
Drammen.....sem er rétt hjá Osló. Lovelí. En annars er bara búið að
vera ólýsanlega gott að hafa englana mína hjá mér.....og Tristan
var svakalega svakalega svakalega glaður að sjá systkin sín.
Hmm....ég hef ekkert mikið að segja samt þannig sko.....hmm....ég
er skotin í strák á mótorfák  rosa gaman  vá....ég bara nenni
ekki að skrifa meira....í bili....hehe. Bæbb.
»
22.03.2007 05:25:44 / isabella
Nú er sko loksins eitthvað að gerast hjá mér....og það líka ekkert
smáræði. Ég tók þátt í trúbadora-keppni um daginn....vorum held ég
16 manns í byrjun og enduðum 4 í úrslitum. Lokakvöldið var síðasta
laugardag og mætingin góð. Sveddi og Dilla mættu til dæmis mér til
stuðnings og viti menn.....ég vann  fékk 50.000 krónur í verðlaun
og upptökur af mér í keppninni hafa verið spilaðar helling í
útvarpinu. Í kjölfarið af þessu fékk ég plötusamning með öllu
tilheyrandi (og meira) og byrja í stúdíó í næstu viku
 ) Ég er að fara að kaupa mér 2 gítara....einn
rafmagnskassagítar og einn fender eða eitthvað svipað. En.....á
föstudaginn skunda ég til Köben....í djammferð til
Mösju...dúllunnar minnar. Ég verð yfir helgina og ætla að kaupa mér
föt og drasl...skemmta mér konunglega og njóta lífsins. Á morgun
fer ég að láta laga tattooin mín....klára tiger-tattooið og fiffa
hin, verður að lúkka vel á plötu-umslaginu  en jæja....fréttir af
þessu öllu á næstu dögum....lofa....sjáumst.
»
23.02.2007 07:24:25 / isabella
Ég veit ekki hvort einhver lesi þetta blogg mitt ennþá......þar
sem ég hef ekkert skrifað rosalega lengi...en allavega....ætla samt
að skrifa. Ég er flutt.....á njálsgötuna...í litla krúttilega íbúð
þar, og líður bara ljómandi. Við Tumi blómstrum hér í miðbænum. Hef
verið að una mér með yndislegu fólki bara og hafa það
gott.......annars er ekkert dramatískt að frétta svo sem.
Hey...jú....ég er hætt með sænska fíflinu! Úff og oj! Það fór ekki
vel....hann er algjörlega sá allra geðveikasti sem ég hef
kynnst...og þá er mikið sagt! annars bara fyndið. Tristan
hefur það gott....elskar að koma til mömmu sinnar í nýja húsið. En
hey...allavega....lofa að skrifa fljótlega! Bæ í bili.
»
28.12.2006 17:18:45 / isabella
þið hafið kannski tekið eftir því að ég hef ekki skrifað neitt
síðan sautjánhundruð og súrkál.....búin að vera upptekin 
annars er ekkert rosalega mikið að frétta. Ég keypti mér nýjan bíl
um daginn....´99 model af golf...svartan...hann er æði. Svo er ég
bara búin að vera að hanga og brallarast eitthvað.Jólin mín voru
frábær...Tristan var hjá mérog það var svo yndislegt. Hann skemmti
sér konunglega og fullt af flottum jólagjöfum. Ég líka....þetta var
æði. Ég hef verið að kela óvenjumikið undanfarið  sem sagt
við hvolpinn minn hann Tuma. Hann er pulsuhundur...svartur og
brúnn....algjör skonsa.en hey....verð að fara....lofa að skrifa
helling fljótlega. Adios...
»
24.11.2006 15:17:26 / isabella
Þá er kominn föstudagur enn á ný og maður er bara í vinnunni 
ekkert planað fyrir kvöldið.....kemur í ljós hvað maður gerir. Á
eftir að tala við Möchu og athuga hvort það verði ekki eitthvað
stuð hjá henni....þar sem Þröstur, kallinn hennar er í Los Angeles
með mínus að taka upp plötuna  flott hjá strákunum. Það
verður örugglega eitthvað geim hjá pæjunni. Annars sér maður bara
til.....hvað kallinn segir og sonna....hann er ekkert á
djamm-buxunum þessa dagana.....en það má alltaf reyna
»
18.11.2006 21:55:59 / isabella
Jamms og já.....þá er maður nú aldeilis búinn að vera busy í dag.
Var að vinna til þrjú og þar var mikið að gera, en gaman eins og
vanalega  enda á ég bestu vinnu í heimi  Svo hitti ég mömmu
og Tristan í smáralind þar sem Tristan fékk að velja sér
dót.....svo fórum við í bíó. Það var rosa stuð. Við erum líka bæði
frekar þreytt eftir daginn  en.....stuðið heldur áfram á
morgun.
»
17.11.2006 13:52:14 / isabella
......bilaði aftur.......og er tilbúinn í dag. Þetta er alveg að
trufla mann sko......við daglegt líf og vinnu  ömurlega
leiðinlegt. En þetta er góð vinna og það er yndislegt að vinna hjá
Sverri....svo er ég að ná í Tristan á eftir  hlakka til, búin
að sakna hans.
»
11.11.2006 02:46:09 / isabella
 Sverrir bauð mér að koma að vinna hjá sér og ég auðvitað
stökk á það. Flott vinna....flottur vinnustaður og fokking flott
laun  ohh...þau eru svo yndisleg.
»
09.11.2006 12:23:55 / isabella
Ég, Hjörtur og Ari höfum hópað okkur saman og erum að taka þátt í
lagasamkeppni á Rás 2. Þemað er að taka sykurmola-lag og ég verð að
segja að okkar útgáfa hlýtur að vinna  tökum Deus og ég
get ekki beðið eftir að sjá niðurstöðuna úr þessu. Enda
hæfileikaríkt fólk hér á ferð  Annars er lítið að
frétta..bara knús með kærastanum og rólegheit.
»
05.11.2006 08:24:11 / isabella
Sjitt sko.....ekkert smá geðtruflað veður í morgun......ég
vaknaði ýkt snemma með pjakknum mínum og húsið bara nötraði. Við
erum að tala um haglél.....klikkað rok og rigningu í þokkabót.
Úff.....guttinn minn var þokkalega hræddur. Svo fórum við út í búð
að kaupa kaffi og ég var bara heppin að halda bílnum mínum á
veginum. En jæja....allavega....ég kíkti til Hilmars og Bryndísar í
gærkvöldi og það var bara mega fínt. Daniel, minn nýji kærasti var
yndislegur eins og alltaf.....allir rosa hrifnir af honum. Sveddi
kallinn tók hann í male-bonding session og það gékk bara svona rosa
vel þeir bonduðu bara þrusu vel. Gaman að vera með manni sem
er svona stór og mikill allur.....það er æði. Þetta er sá
karlmannlegasti sem ég hef verið með sko svo er hann svoooo
skotinn í mér, þá sérstaklega hárinu mínu það er æði. Nema
sko...hann lætur það ekki vera...það stendur alltaf upp í loftið
þegar hann er nálægt. Maður er bara farinn að spá í að setja
strákinn í hárgreiðslunám en hey...verð að fara....sí
ja.
http://www.myspace.com/isabellaonmyown
http://www.myspace.com/isabella_ftw
Endilega hlustið 
»
03.11.2006 16:16:05 / isabella
þá er ég loksins að nenna að skrifa í þessa dagbók. Mín er komin
með kærasta.....sá heppni heitir Daniel og er frá Svíþjóð og er sá
fallegasti maður í heimi  er sko bara in love. Bíllinn minn
er loksins kominn úr viðgerð svo það er allt á uppleið. Annars er
bara klikkað að gera núna þessa dagana svpo ég hef ekki mikinn tíma
til að skrifa....er að fara að sækja strákinn minn á leikskólann.
»
Síður: 1 2 3 ... 7
|
Heimsóknir
Í dag: 5 Alls: 24289
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 19 mars
|